Af hverju eru ekki þeir reknir af Landspítalanum, sem hnýstust í sjúkraskrár frægðarfólks? Væri einföld leið til að spara án þess að þurfa að skammast sín um leið. Billeg lausn er að segja bara: “Skamm”. Máttlítil viðbrögð sjúkrahússins við agabroti er angi af almennri vangetu þjóðarinnar við að halda uppi aga. Hér komast menn upp með að setja þjóðina á hausinn og eru ekki einu sinni settir í gæzluvarðhald. Í Bandaríkjunum væri hver einasti bankabófi og útrásarbófi búinn að sitja í fangelsi síðan haustið 2008. Þar með taldir lagatæknar og bókhaldstæknar. Alvöruleysið er þjóðarsiðleysi.