Afdalir og útnárar

Punktar

Fyrir löngu er komið í ljós, að flokkar ríkisstjórnarinnar eru pólitískir bófaflokkar, sem gæta voldugra sérhagsmuna. Bæta hag þeirra allra ríkustu á kostnað almennings, einkum þó á kostnað velferðar. Auðlindum samfélagsins er stolið kruss og þvers. Vopn bófanna eru lygar og svik. Á oddinum er mesti loddari sögunnar. Kringum hann eru meira eða minna ógeðugir bófar og bjánar, sem hvergi í nágrenninu væru settir til borðs. Þótt þetta megi öllum teljast skýrt, lýsa enn 40% kjósenda fylgi við bófaflokkana tvo. Meðan staðan er slík er engin von um morgunbirtu í þessari voluðu þrælakistu afdala og útnára.