Björn Leifsson sparkaði í aumingjana, þegar Ásmundur Stefánsson bankabófi leyfði honum að skipta um kennitölu á World Class. Ásmundur og Björn skulda Rogelio Biscara 900.000 krónur og borga þær ekki. Biscara var einn af þrælum Björns og átti að fá 882 krónur á tímann hjá honum. Þá fékk Björn leyfi bófanna Björns Bjarnasonar og Össurar Skarphéðinssonar í Þingvallanefnd til að byggja villu við Þingvallavatn. Flytur byggingaefni í villuna með þyrlu. Hann hefur líka gras af peningum. Fékk milljarð afskrifaðan í Landsbankanum, banka þjóðarinnar. Og World Class gefins. Þá svívirðu þarf að afturkalla.