Aldagömul ást á lagatækni

Punktar

Öldum saman hefur lagatækni komið í stað stjórnmálaumræðu hér á landi. Allt þvaðrið um IceSave minnti á aldargamalt þvaður um Uppkastið. Og þeir, sem þekkja Njálu, vita um dálæti höfundarins á lagatækni. Flettið bókunum um Aldirnar og þið komizt að raun um, að Íslandssagan er gegnsýrð af lagatækni. Sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar var ekki blóðugt stríð þjóðarinnar. Hún var endalaust þvarg embættismanna um útúrsnúninga á gömlum og nýjum lögum. Enn komast þingmenn þá fyrst í ham, er þeir komast í tæri við mál, sem taka má á lagatæknilegu klofbragði. Pólitík víkur hér fyrir rugli að hætti IceSave.