Allir fagna Sýrlandssamningi Bandaríkjanna og Rússlands nema uppreisnarmenn. Segir mér, að Assad og stjórn hans séu sigurvegarinn. Hann skrifar undir og drepur svo eftir megni að hætti Saddam. Borgararnir græða hvorki né tapa. Í auknum mæli verða deiluaðilum útveguð hefðbundin vopn. Skynsöm leið hefði verið að gera Sameinuðu þjóðunum kleift að taka við stjórn í landinu. Til þess hefði þurft að ryðja Assad úr vegi. Allir græða á samningnum nema þjóðin og uppreisnarmenn. Obama forðast óvinsælt stríð og Pútín gerir sig gjaldgengan í störukeppni heimsveldanna. Blóðbaðið heldur svo bara áfram.