Allir ganga enn lausir

Punktar

Hér ganga lausir mestu bófar landsins og heilu bófaflokkarnir. Engin mál fá afgreiðslu hjá sértökum saksóknara. Engum lögum hefur verið komið yfir kvótagreifa, sem stálu þjóðarauðlindinni og veðsettu hana. Bófaflokkur sjálfstæðismanna hagar sér eins og ekkert hafi í skorizt, hér hafi ekki orðið neitt hrun að frumkvæði flokksins. Alþýða manna er fyrir löngu búin að gefast upp á kerfinu, fjórflokknum, pólitíkusum, embættismönnum. Einkum er hún búin að gefast upp á Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, á sínum tíma skipuðum af Birni Bjarnasyni. Þaðan heyrist hvorki hósti né stuna.