Alltaf traust og alltaf eins

Punktar

Kínahúsið … Kínahúsið við Lækjargötu er alltaf eins, ár eftir ár, í tæpan áratug. Þar er sama elskulega þjónustan, sömu notalegu húsakynnin í stöðluðum Kanton-stíl rauðum, sama rólyndið og sama lágværa tónlistin og fyrst og fremst sama góða, staðlaða Kanton-eldamennskan. … Þetta eru svo sem sömu réttirnar og á öllum öðrum stöðluðum Kínastöðum. En hér er matreiðslan betri en annars staðar. Hér er eldað fyrir hvert borð fyrir sig, en maturinn ekki veiddur ofeldaður upp úr hitakössum. Hér er hæfilega mikið af sósu í hádeginu, en heldur of mikið á kvöldin. Í seinni tíð hefur djúpsteikingahjúpur stundum farið örlítið úr hófi fram. …