Guðdómurinn á ekkert tilkall til þöggunar. Hæðast má að hvers kyns almætti og saka geðbilaða spámanninn úr eyðimörkinni um barnaníð. Engin trú hefur rétt á að tekið sé tillit til sjónarmiða aftan úr forneskju. Gildir jafnt um Votta Jehóva og Wahabíta. Hafni Vottar blóðgjöf til barns getur það jafngilt morði. Klerkar guðdómsins hafa löngum krafizt eins konar friðhelgi um trú sína. Að hún njóti virðingar umfram annað rugl. Fráleitt. Allur okkar vestræni heimur fór fyrir öldum gegnum endurreisn, trúarstríð, lestrarbyltingu og innreið lýðræðis. Öll sú saga er liðin og við höfum önnur verkefni en kveinið í miðaldaklerkum.