Almenna og fína farrýmið

Punktar

Gott er, að Jóhanna og Steingrímur flugu á almennu farrými á norræna þingið um daginn. Það sparar kannski lítið fé, en er táknrænt um, að tími sukks og svínarís eigi að vera liðinn. Fyrirmennin fljúgi eins og fólkið. Einnig var táknrænt, að formaður hrunflokksins flaug frá þinginu á Saga-klassa. Kannski hefur Bjarni hitt þar einhvern útrásarvíkinginn. Eiga heima saman á klassa liðinna græðgistíma. Svo er spurning, hvort ekki sé tímabært að hætta að sinni aðild að Norðurlandaráði. Sparar töluvert fé. Bjarni og Siv geta notað það til að gefa Norðurlöndum fingur fyrir meintan skort á IceSave-stuðningi.