Alþingi ákvað að hefja óháða rannsókn á starfi lífeyrissjóðanna undanfarin 14 ár, en hefur ekki efnt loforðið. Kannski vegna Gylfa. Alþingi ákvað að hefja óháða rannsókn á falli sparisjóðanna, en hefur ekki efnt loforðið. Kannski vegna Blöndals. Alþingi ákvað að hefja rannsókn á Fjármálaeftirliti og Seðlabanka, en hefur ekki efnt loforðið. Kannski vegna Davíðs og Jónasar Friðriks. Alþingi ákvað að hefja óháða rannsókn á Íbúðalánasjóði, en hefur ekki efnt loforðið. Kannski vegna Guðmundar. Alþingi gefur sér langan tíma til að bulla í hálftíma hálfvitanna. En ekki tíma til að efna eigin loforð.