Alþýðusambandið skaðar fólkið

Punktar

Forseti Alþýðusambands Íslands er einn hrunverja. Gylfi Arnbjörnsson hefur árum saman heimtað örari álbræðslur. Af hans völdum og fleiri slíkra fóru Landsvirkjun, Orkuveitan og HS Orka fram úr sér. Framkvæmdu grimmt fyrir fé, sem fyrirtækin áttu ekki. Landsvirkun býður út Búðarháls, Orkuveitan borar vítt og breitt um Hellisheiði, veitir arseniki og brennisteini á Hveragerði. HS Orka kaupir túrbínur. Engum þeirra er treyst fyrir fé, enda öll tæknilega gjaldþrota. Langvinnt garg Gylfa hrunverja er ein helzta forsenda þess, að Orkuveitan hækkaði rafmagn til þín um 28,5%. Alþýðusambandið skaðar fólkið.