Andlitslyftingin klikkaði

Punktar

Vafasamt er að gera Framsókn það til geðs að tefja stjórnarmyndunina. Þótt flokkurinn hafi farið í andlitslyftingu, er innihaldið sami sorinn og áður. Framsókn er enn pólitískur armur nokkurra fjárglæframanna. Útilokað er, að bráðabirgðastjórnin taki þátt í að leyfa Framsókn að bregða fæti fyrir aðgerðir gegn fjárglæframönnum. Betra er að láta reyna á, hvort hún lætur aðgerðir fylgja orðum. Ef Framsókn er staðin að hefðbundnum baktjaldaleik, verður það í fersku minni kjósenda í kosningunum í apríl. Þá munu kjósendur fatta, að andlitslyfting nægir hórunni ekki til að komast í dýrlingatölu.