Arion er Kaupþing

Punktar

Þeir, sem áttu þátt í að koma óorði á Kaupþing, eru enn starfandi hjá Arion. Monica Caneman stjórnarformaður bullar bara út í eitt. Arion hefur hegðað sér alveg eins og Kaupþing gerði. Með stjórnlausa græðgi að leiðarljósi. Arion lætur verstu bófa landsins reka áfram fyrirtæki, sem þeir komu á hausinn. Arion lætur vinna hjá sér menn, sem hafa réttarstöðu sakbornings, eins og það heitir á dulmáli lagatækna. Arion brást þar við eins og aðrir bófar, gengur eins skammt í átt til sáttar við þjóðina og mögulega er unnt. Stjórn, bankastjórar og framkvæmdastjórn eru við sama heygarðshorn og fyrr.