Frestað hefur verið birtingu reiknivélar vegna skuldamillifærslu. Hún kemur ekki fyrr en eftir kosningar, svo reiði fólks hafi ekki áhrif í kjörklefanum. Í staðinn gera spunakarlar einhliða áróðursmynd á kostnað skattgreiðenda til að afla fylgis við millifærsluna. Vel er við hæfi, að bófaflokkar fari þá leið. Nógu margir eru nógu heimskir til að láta áróður ginna sig til fylgis við þvætting. Hlutlaus reiknivél hefði hins vegar gert flesta reiða, þar á meðal þá heimsku. Ríkisstjórn loforða, svika og lyga lætur ykkur borga fyrir nýjar sjónhverfingar. Minnir á þær gömlu, sem komu henni til valda fyrir ári.