Ástarsamband hryðjuverkafólks

Punktar

Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði í gær, að “ekkert getur fjarlægt Bandaríkin frá Ísrael”. Þar með gefur Obama Ísraelum frítt spil í frekari brotum á alþjóðareglum um stríðsglæpi og um meðferð fólks í hernumdu landi. Aldrei verður friður í heiminum meðan varir þetta skelfilega ástarsamband Bandaríkjanna og Ísraels. Þetta eru tvö verstu hryðjuverkaríki heims. Engin eru eins hættuleg heimsfriðnum. Ísrael heldur öllu í uppnámi í heimi araba og bandarísk styrjaldarsárátta hefur reynzt vera þrotlaus. Hún hefur núna síðast dregið Evrópu inn í tóma endaleysu í Írak og Afganistan.