Frá Auðólfsstöðum í Langadal um Auðólfsstaðaskarð að Gautsdal í Laxárdal.
Skarðið er lágt og fljótfarið.Í miðju skarðinu eru tóftir Hávarðsstaða. Norðar er Gautshóll, þar sem landnámsmaðurinn Gautur hinn einhenti á að vera heygður. Laxárdalur var fyrrum fjölbýl sveit, en er nú allur kominn í eyði.
Förum frá Auðólfsstöðum í Langadal norðaustur jeppaveg um Auðólfsstaðaskarð að eyðibýlinu Gautsdal í Laxárdal. Þar er leið norður-suður um Laxárdal.
4,0 km
Húnavatnssýslur
Jeppafært
Nálægar leiðir: Laxárdalur.
Skrásetjari: Jónas Kristjánsson
Heimild: Herforingjaráðskort