Axlaði enga ábyrgð

Punktar

Það er rangt hjá Bjarna Ben, að Hanna Birna hafi axlað ábyrgð. Hún hrökklaðist úr embætti ráðherra vegna „illrar“ gagnrýni. Sá ekki eftir neinu, baðst ekki afsökunar og var hin versta, flúði land. Hún axlaði ekki ábyrgð, heldur hafnaði henni. Engar skýringar hafa fengizt á ofsa hennar við afskipti af rannsókn máls hennar og alls konar lygum á ýmsum stigum. Hún hafði bara vaðið um í öfgafullri frekju út af máli, sem gaf ekkert tilefni. Í brölti sínu laskaði hún embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðis og ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytisins. Neitar að viðurkenna allt þetta og axlar enga ábyrgð. Allt er öðrum að kenna.