Bæn ársins 2007

Punktar

Ó Mammon vors lands. Gerðu mér jólin gleðileg. Gef mér iPhone og Gaggenau eldavél, Hummer í sveitina og Range Rover í miðbæinn. Gef mér stóra lóð á Seltjarnarnesi. Gef mér Dolce et Gabbana nærföt og Armani jakka. Gef mér Gucci tösku og Salvatore Ferragamo skó. Gef mér McDonalds umbúðir til að setja matinn í, svo að börnin borði hann. Gef mér Davidoff vindla og Chateau Petrus rauðvín. Gef mér Louis Vuitton belti og Versace armbandsúr. Gef mér stóðhestinn Þórodd og hryssuna Lukku frá Stóra-Vatnsskarði. Gef mér Arsenal og Manchester United. Hafðu vörumerkin með stóru letri læsilegu.