Bandarískir kjósendur eru bjánar samkvæmt könnunum á skoðunum og þekkingu þeirra, sem Ellen Goodman hefur safnað saman og birt í Boston Globe og New York Times. Þeir halda, að Írak hafi notað gereyðingarvopn í vörninni gegn innrás Bandaríkjanna. Þeir halda, að Írak hafi staðið fyrir árásinni á World Trade Center. Þeir eru ánægðir með að hafa farið í stríð gegn Írak á upplognum forsendum og vilja næst fara í stríð við Íran á einhverjum eða engum forsendum, ef George W. Bush vill það.