Barack Obama verður forseti

Punktar

Spunakarlar repúblikana eru farnir að sjá hrunið, sem verður í haust. Þótt Hillary Clinton berjist til síðasta blóðdropa, rispar hún ekki teflonhúð Barack Obama. Repúblikanar hafa stórtapað öllum aukakosningum undanfarið. Obama er hættur að tala um Clinton og eyðir öllu púðri sínu á John McCain, sem á sér ekki viðreisnar von. Obama hefur harðnað í orrahríð Clinton-hjónanna. Þau hafa beitt öllum ráðum, sem repúblikanar ætluðu að beita gegn Obama. Allt kemur fyrir ekki. Repúblikanar munu hrynja í haust. Fólk hefur séð gegnum nýfrjálshyggjuna og telur, að McCain verður líkur George W Bush.