Chicago-drengirnir bera ábyrgð á hagfræði síðustu áratuga og kreppu þessa árs. Þeir predikuðu óheftan markað fjármála með afleiðingum, sem allir sjá. Óheftir spilagosar hafa reynzt geta sett fjárhag heilla ríkja á hliðina, þar á meðal Íslands. Hvarvetna sameinast hagfræðingar gegn áróðri Chicago-drengjanna, sem hafa spilað rassinn úr buxunum. Samt eru þeir enn í áliti hjá síðbúnum trúskiptingum, til dæmis í Samfylkingunni. Trúskiptingar halda nýrri sannfæringu löngu eftir að hún er orðin úrelt. Jafnvel Barack Obama er trúskiptingur, hvattur af styrktaraðilum til að styðja Chicago-drengina.