Kvótagreifar eru ekki sjávarútvegur. Fólkið og tækin eru sjávarútvegurinn. Greifarnir eru bara mara á sjávarútvegi. Við þurfum að losna við þá. Fólkið og tækin eru betur komin hjá þeim, sem kunna að gera út. Kvótagreifarnir stálu þjóðareigninni eða keyptu hana af þeim, sem stálu henni. Bankarnir heimiluðu veðsetningu þjóðareignar og verða bara að súpa seyðið af því eins og hverjir aðrir þjófsnautar. Ofan á allar aðrar syndir sínar tóku greifar launafólk í gíslingu í kjarasamningum. Hóta nú að reka starfsfólkið líka. Samtök atvinnulífsins og Mogginn og hálft Alþingi eru málpípur greifanna.