Bezt að losna við hann

Punktar

Ég sé fyrir mér kraftmikla auglýsingu á jeppa, sem á að höfða til kvenna. Kona sést strjúka bílstýri og mælaborð. Drafandi bakrödd tíundar kostina. Það er ekki bjórfýla af honum, hann liggur ekki í sófanum að horfa á bolta, er ávallt reiðubúinn en aldrei uppáþrengjandi, er ekki timbraður á mánudögum, skilur setuna ekki eftir uppi. Auglýsingu, sem segir okkur skýrt, að karlar eru ætíð til vandræða og betra sé að slægjast eftir traustum jeppa. Áður vissum við, að konur gera þrjá hluti í einu, en karlar bara einn. Þannig mætti setja karla út á gaddinn. Vantar bara leið til að losna við þá úr barneignum. Væri heillaspor.