Bjarni búinn að vera

Punktar

Mér finnst Bjarni Ben var eins konar næturvörður á vitleysingahæli. Gengur á eftir Framsókn og hreinsar upp eftir hana. Tekur ábyrgð á öllu, sem sagt er og gert. Ábyrgð á loforði Framsóknar um heimsmet í gjöfum til kjósenda. Á kröfunni um, að Evrópa verði ekki bara sett á ís, heldur sé einnig sparkað í hana. Fagnaði makrílklúðri Framsóknar og sparkaði líka í Noreg og Færeyjar. Rekur stefnu fylgiríkis Ný-Sovétríkjanna og Kína. Notar tækifærið í leiðinni að gauka millifærslum frá fátækum til ríkra, einkum kvóta- og ferðagreifa. Gerði þannig drauginn Davíð að leiðtoga lífs síns. Bjarni er búinn að vera.