Björn Ingi farinn

Punktar

Björn Ingi Hrafnsson þekkir engan mun á réttu og röngu. Hann lét Framsókn kaupa á sig föt fyrir upphæð, sem nemur útborguðum árslaunum kennara á leikskóla. Fötin hafa því ekki verið á verði Guðsteins. Björn Ingi borgaði ekki einu sinni skatt af þessum hlunnindum. Hann er upp urinn í pólitík eftir skrautlegan feril athafnastjórnmála. Formaður Framsóknar bar blak af honum. Enda er frábært, að valdalaus flokkur sé í hringiðu spillingar. Og nú er hinn skartbúni dáleiðari fjölmiðla búinn að segja sig frá pólitík á vegum Framsóknar. Mikið er gott að vera laus við svona týpu úr pólitík.