Blásið burt kófinu

Punktar

Fjölmiðlar stóðu sig vel í stríði Vigdísar Hauksdóttur síðustu daga. Allt, sem máli skiptir, kom upp á borðið, jafnvel fyrra tal hennar um illan feng í glópagulli. Ýmsar aðrar fréttir á sama tíma hafa hins vegar vakið fleiri spurningar en þær svara. Til dæmis viðtölin við eiganda Cheap Jeeps, við talsmann Umferðarstofu og við formann bæjarráðs Árborgar. Í öllum tilvikum reyndi viðmælandinn að þyrla upp ryki. Svona viðtöl þarf að framlengja til að reyna að blása burt kófinu og komast að staðreyndum. Birta svo bara þann hluta viðtalanna, sem segir eitthvað. Sleppa alveg pörtunum með mekkinum.