Eins og fleiri hef ég fengið tölvupóst frá netfanginu tryg49@hotmail.com. Þar tjáir sig maður, sem segist heita Tryggvi Gunnarsson. Aldrei hefur mér dottið í hug, að þetta væri samnefndur umboðsmaður Alþingis. Davíð Oddsson er hins vegar svo trylltur af hatri, að hann verður blindur á augljós atriði. Lagði Reykjavíkurbréf undir davíðskar ofurskammir um Tryggva umba vegna skoðana nafnans. Löngun Davíðs til að klekkja á umbanum byrgði honum sýn á einföld persónuvíxl. Ekki birti til hjá Davíð, þegar honum var bent á þetta. Sagði þá bréfið vera falsað, sem svo er þó ekki. Eftir dúk og disk baðst Mogginn svo afsökunar, en ekki trylltur Davíð.