Bófinn hundskist burt

Punktar

Með viðtalinu við Fréttablaðið staðfestir Sigmundur Davíð, að hann er mesti siðblindingi landsins. Ekkert stenzt af því, sem hann áður sagði, sama um hvað hann er að tala. Á þingi sagði hann sig mundu fara eftir siðareglunum. Skrifaði síðan ekki undir þær og felur sig núna bak við siðaregluleysið. Býr á eyðibýli til að hafa fé af ríkinu. Segir alla Íslendinga vera kröfuhafa, það er „étið þið skít“. Hótaði kröfuhöfum kylfu og haglara, en veitti þeim síðan feitan afslátt. Forherti skrumarinn segir bara það, sem hljómar bezt hverju sinni og hefur alla þjóðina að fífli. Bófinn hundskist burt og úldin Framsókn með honum.