Bókstafurinn eitrar

Punktar

Gyðingar er ekki hættulegri en kristnir, múslimar eru heldur ekki hættulegri en kristnir. Það er bókstafstrú, sem er hættulegust, af hvaða toga sem er. Til dæmis kristnir predikarar, sem hamra á orðalagi í gamla testamentinu og vilja láta það stjórna þér. Svo sem ameríska teboðið. Sama gildir um fornrit annarra trúarbragða. Trúarrit úr forneskju geta verið hreint eitur. Til dæmis hatrið, hefndin og grimmdin, sem gegnsýrir gamla testamentið. Við þurfum að hafna bókstafstrú. Hvort sem trúaðir heimta sharia-lög eða vilja fara með konur eða homma sem óæðri verur. Bókstafstrú er versta uppspretta stórglæpa.