Bónus afskriftakóngs

Punktar

Karl Wernersson er afskriftakóngur Íslendingar. Fékk níutíu milljarða króna afskrifaðar hjá bönkunum. Það er sko munur að vera séra Jón, með kveðju frá skattgreiðendum. Hluta af gróðanum notaði kóngur til að fela í skattaskjólum aflandseyja. Nú hefur Seðlabankinn verðlaunað kónginn sérstaklega með því að veita honum 20% bónus á evrurnar. Það er sko munur að vera séra Jón. Fyrst er afskrifað og síðan gefinn afsláttur í innflutningi fjárins. Seðlabankinn er orðinn að mótor í gjaldeyris-samsæri gegn þjóðinni. Svipan gengur á baki Jóni og Jónu aumingjum, en helztu bófar landsins njóta sérstakra fríðinda.