Tíðindi gerast loksins í pólitíkinni. Fjögurþúsund manna Breivik-félag lýsir yfir stuðningi við Framsókn. Forustumaður félagsins er frægur fyrr lýsingu sína á áróðursmyndbandi Breivik á YouTube um fjöldamorð hans: „Myndin er hrífandi og snilldarverk, verulega umhugsunarverð.“ Félagið heitir „Mótmælum mosku á Íslandi“ og hefur fengið rúmlega 4000 stuðningsyfirlýsingar. Þannig gengur gamla og gróna Framsókn í endurnýjun lífdaganna. Breytist í trylltan flokk trylltra pólitíkusa á herðum trylltra kjósenda. Sannir Íslendingar flykkjast í Framsókn til að fá útrás fyrir trylltan ótta sinn við múslima.