Brokkað á nýklassík

Punktar

Lækjarbrekka … Lækjarbrekka er mest fyrir vel stæða ferðamenn, sem sumir lofa hana í hástert. Hún býður sérhæfða matseðla, dýra og spennandi, á 6000-7000 krónur, með þemum á borð við lunda, villibráð og lamb. Mér reyndist ofnbakað lamb vel, hæfilega rautt, borið fram með grófsöxuðu grænmeti og köku úr kartöfluþráðum að nýklassískum hætti. … Eldhúsið er nýklassískt, þegar það vandar sig og þegar það vandar sig ekki. Hugsað er um fagra uppsetningu rétta, sósur mikið notaðar, en minna hugsað um eðlisbragð hráefna. …