Bros ímyndunarfræðinga

Punktar

Margt broslegt hefur komið frá íslenzkum ímyndunarfræðingum á síðari árum. Frægt var, þegar límt var bros og skrautlegt hálsbindi á Halldór Ásgrímsson. Allir sáu gegnum brosið. Nú er Jóhanna Sigurðardóttir klædd í stelpuföt. Þau virka ekki, nema viðkomandi brosi svo, að sýni allar tennur í sjálflýsandi snjóhvítum lit. En hún er því miður alltaf með skeifu, svo að þetta gengur ekki upp. Skeifan er henni eðlislæg, minnir eins og röddin á útifundina fornu. Nær væri fyrir ímyndunarfræðinga að gera eitthvað, sem varðveitir gamalt traust á henni. Eða gera bara einhverja astró-píu að forsætis.