Bullurnar

Punktar

Einn úr klíkunni hefur samið óháð lögfræðiálit til stuðnings ráðherrum. Hann er orðinn prófessor og skiptir tíma sínum milli hnitmiðaðra og innrammaðra greina í Mogganum til varnar Hinum Mikla og ruddalegra mannlýsinga í fleiri bréfum en því eina, sem hengt var upp á töflu í Verzlunarskólanum. … Annar prófessor skiptir líka tíma sinum milli hnitmiðaðra og innrammaðra greina í Mogga til varnar Hinum Mikla og annarra skrifa, sem felast í að klippa og líma saman að nýju texta annarra manna og þykjast hafa skrifað hann sjálfur. Hann telur þetta eðlilegt og sjálfsagt, hafið yfir lög og rétt. … Þriðji var einu sinni ráðherraígildi sem fréttastjóri ríkissjónvarpsins. …