Burt með brennuvarga

Punktar

Af hverju gengur Heiðar Már Guðjónsson laus? Af hverju fær gengisbraskarinn drottningarviðtal við sig á Stöð 2? Er hún formlega orðin málgagn gírugustu fjárglæframanna landsins? Hann sat fund með George Soros og Bruce Kovner um árás á krónuna. Hann samdi minnisblað fyrir Björgólf Thor Björgólfsson eða Landsbankann um árás á krónuna. Hún hrundi og hundruð börðu tunnur framan við Alþingishúsið. Af hverju er ekki gert neitt í þessu? Eiga brennuvargar að vaða um götur borgarinnar og hóta fjölmiðlum öllu illu? Er ekki hægt að reka hann úr landi fyrir lífstíð? Á óhamingja okkar engan enda að taka?