Við þurfum ekki vinstri stjórn til að framlengja eignarhald kvótagreifa á þjóðarauðlindinni. Sjálfstæðisflokkurinn er einfær um það. Við þurfum ekki vinstri stjórn til að framlengja bankaleynd og bankabónusa og glæfrastjórn bankabófa á peningum þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er einfær um það. Við þurfum ekki vinstri stjórn til að framkvæma úreltar ofstækiskenningar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um göfgi fjármagnsins. Sjálfstæðisflokkurinn er einfær um það. Burt með þessa ríkisstjórn, sem hefur svikið flest, sem hún lofaði í upphafi. Sem víkur sér undan að veita þjóðinni siðferðisforustu.