Bylting á Vesturlöndum

Punktar

Fyrr eða síðar verður Vesturlöndum bylt. Þjóðir munu ekki þola fátæktarvæðingu millistétta. Auðmagnið hefur gengið of langt. Þegar Bandaríkin geta með TISA troðið friðhelgi banka og annarra fjármálabófa upp á Evrópusambandið, verður fjandinn laus. Við sjáum anga af þessu hér heima. Tveir bófaflokkar náðu völdum með umboðssvikum. Létu vera sitt fyrsta verk að lækka auðlindarentu og afnema auðlegðarskatt. Eru nú að brjóta niður heilbrigðiskerfið og kreista fatlaða, öryrkja, aldraða, alla sem minnst mega sín. Byltingin byrjar þó ekki hér, því þjóðin er samsafn vesalinga. En við munum sogast með öðrum, þegar birtir upp.