Við þurfum ekki að ræða um, hvort bylting verði í landinu. Eða hvort hún sé lögleg. Hún hefur þegar gerzt. Byltingin er staðreynd. Ríkisstjórnin framdi hallarbyltingu með því að knésetja þjóðina og varpa henni í þrældóm. Hún gerði það með atkvæðavélum á þingi, sem samþykktu ólögleg neyðarlög og gjaldeyrislög. Ef þjóðin rís upp og byltir stjórninni, er það ekki bylting, heldur gagnbylting. Hún er tilraun til að innleiða aftur gegnsætt lýðræði, sem ríkisstjórnin hefur afnumið með stuðningi Alþingis. Gagnbyltingin verður ekki ólögleg. Það var hallarbylting ríkisstjórnarinnar, sem var ólögleg.