Dagur vitfirringanna

Punktar

Kjósendur hafa orðið í dag eins og oftar áður. Þetta sérstæða lið, sem ber ábyrgð á óförum þjóðarinnar. Kaus yfir okkur Sjálfstæðisflokkinn trekk í trekk. Ber fulla ábyrgð á gerðum fulltrúa sinna. En afneitun er eitt helzta þjóðareinkenni okkar. Því neita menn að bera ábyrgð á fulltrúum sínum á þingi, í ríkisstjórn og í sveitarstjórnum. Þetta sama lið tók í vetur trú á mesta skálk Íslandssögunnar, Ólaf Ragnar Grímsson klappstýru. Flykktist á kjörstað til að neita að borga “erlendar skuldir óreiðumanna”. Engin leið er að koma viti fyrir Íslendinga. Taka alltaf versta kostinn, sem í boði er.