Skrítin tilfinning að lesa um sjálfsvígsárás á kaffihús, þar sem við hjónin vorum að kvöldi fyrir nokkrum árum. Argana kaffihúsið við torgið Jamaa-el-Fnaa í Marrakech í Marokkó er ferðamannastaður. Kaffihúsið veitir frábært útsýni yfir eitt af frægustu torgum heims, sem breytist í Tívolí á kvöldin. Autt á daginn, en breytist á kvöldin í þorp skyndibitastaða og skemmtiatriða með rómantísku yfirbragði úr Þúsund og einni nótt. Pólitík var ekki efst í huga okkar, þegar við virtum fyrir okkur atganginn. Í gær var annar atgangur þar. Kaffihúsið breyttist í rúst, þar sem ellefu ferðamenn lágu í valnum.