Davíð fórnar Flokknum

Punktar

Davíð Oddsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eru farnir að vera langdvölum á heimilum og í sumarhúsum hvor annars. Mér kemur það ekki á óvart. Hef oft bent á leyniþræðina milli Davíðanna. Davíð eldri hefur lengi skipað Bjarna Benediktssyni að hlýða Davíð yngra. Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að eins konar undirdeild í Framsókn. Bjarni lætur teyma sig í hver loforðasvikin á fætur öðru. Jafnvel í frumhlaupið um svikið þjóðaratkvæði. Maður friðarins er Davíð ekki, enda tuddaðist hann jafnan í pólitíkinni. Og svo heiftrækinn er hann, að velgengni Sjálfstæðisflokksins er harla lítilvæg í hans huga.