Davíð greifi verði formaður

Punktar

Samkvæmt skoðanakönnun Viðskiptablaðsins þarf Flokkurinn nauðsynlega að fá sér foringja. Greifinn hefur tvöfalt fylgi ættarlauksins. Nú þarf bara einn lítinn aukalandsfund til að bjarga málinu. Flokkurinn er hvort sem er í afneitun vegna hrunsins. Hvað er þá betra en að fá sjálfan hrunstjórann sem formann. Betra en að hafa bara liðsforingjann úr hruninu. Með Davíð Oddsson að formanni blæs Flokkurinn til stórsóknar brennuvarga gegn brunaliðinu. Greifinn verður ekki í vandræðum með að slá stjórnina kalda. Með nokkrum vel völdum smjörklípum og einu reglustrikuhöggi á skallann. Vanur maður.