Hvor skuldar okkur meira Davíð eða fjárglæframenn alls? Ég held þeir skuldi okkur jafnt. Tökum seðlabankastjórann: Gaf út veðlaus ástarbréf, sem gerðu Seðlabankann gjaldþrota. Hélt genginu föstu meðan innvígðir skófu gjaldeyri burt. Lét breyta skilgreiningum hugtaka fyrir IceSave. Alls er hans skuld þúsund milljarðar. Fjárglæframenn utan og innan banka náðu fé upp á margfalt hærri upphæð. Mest af því kom niður á erlendum lánardrottnum. En þúsund milljarðar voru á okkar kostnað. Að mestu er þetta sama tjón og Davíð olli, tölurnar eru tvíteknar. En jafnvægi er milli Davíðs og fjárglæframannanna.