Fínt er, að brezka fjársvikastofnunin vill aðstoða Evu Joly og saksóknara efnahagsbrota. Þar er mikil þekking í húsi og þar í landi eru djúp spor íslenzku útrásarinnar. Vonandi fáum við að vita, hvers vegna brezka ríkið beitti hryðjuverkalögum á íslenzka banka. Þá mun koma sitthvað í ljós, sem við fengum ekki að vita á sínum tíma. Við erum fyrst núna að átta okkur á, að íslenzku bankarnir voru tæpast saklaus fórnardýr vondra útlendinga. Þeir voru siðlaus glæpafélög. Ekki skiptir minna máli, ef fjársvikastofnunin hjálpar Evu Joly og saksóknurum efnahagsbrota að elta uppi falda peninga.