Don Kíkóti og Sansjó Pansa

Punktar

Saga ríkisstjórnarinnar er upp úr frægri lýsingu eftir Miguel de Cervantes. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í hlutverki Don Kíkóta, vantar bara kopp á hausinn. Skæklast á dróginni Rosinante eða Framsókn um sinn einkaheim. Berst við óvígan her virkra vindmylla í athugasemdum, verst loftárásum álitsgjafa. Nær hverju heimsmetinu á fætur öðru, unz honum er komið í rúmið. Bötler hans tryggur er Bjarni Ben í hlutverki Sansjó Pansa. Nær sambandi við veruleikann á asnanum El Rucio, öðru nafni Sjálfstæðisflokknum. Gegnum allar hremmingar heldur herbergisþjónninn á asnanum tryggð við galinn greifann á dróginni.

Plaza de España, Madrid