Dreggjar þjóðfélagsins

Punktar

Hrunið var ekki Geir Haarde að kenna, heldur kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Gáfu okkur ekki bara ráðalausan Geir, sem lofaði IceSave greiðslunni. Einnig gereyðingarvopnið Davíð Oddsson. Gáfu okkur frjálshyggju og græðgisvæðingu. Gáfu okkur einkavinavæðingu bankanna og skort á eftirlitsiðnaði. Ýmsir aðrir komu að sögunni, en ábyrgð kjósenda Sjálfstæðisflokksins er yfirþyrmandi. Nú hefur nýr formaður bætt um betur. Ofan á fyrri hneyksli hefur flokkurinn alveg gleymt IceSave-fortíðinni. Kjósendur flokks Bjarna Benediktssonar eru meiri dreggjar þjóðfélagsins en kjósendur flokks Geirs Haarde voru í haust.