Dularfullar yfirlýsingar

Punktar

Kjartan Gunnarsson veit, hverjir stóðu að útvegun tugmilljóna króna frá hagsmunaaðilum, en vill ekki segja frá. Bjarni Benediktsson veit þetta líka og ætlar að segja síðar frá því. Síðar! Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Flokksins, sagði af sér í dag. Segist samt vera saklaus af tugmilljónunum. Málið verður dularfyllra með degi hverjum. Flokkurinn hefur í bak og fyrir verið kostaður af hagsmunaaðilum. Og flokksformaðurinn ætlar síðar að segja frá, hvernig var í pottinn búið. Þjóðin veit ekki enn, hverjir höfðu frumkvæðið, hverjir höndluðu peningana og hverjir vissu hvað.