Sé Samfylkingin flokkuð vinstra megin á miðju pólitíska litrófsins, má sjá Bjarta framtíð hægra megin á miðjunni. Samkvæmt framgöngu þingmanna hennar er hún frjálslyndur borgaraflokkur frekar en frjálslyndur sósíalflokkur. Píratar eru hins vegar óflokkanlegir, sem er kostur, því að litróf stjórnmálanna er úrelt. Við þurfum ekki fleiri flokka í mynztri fjórflokksins. Við þurfum ekki flokk, sem segir öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. Við lifum í skógi gerræðis, þar sem rándýrin bíða færis. Blekking Hálsaskógar gengur ekki upp. Menn svíkja til dæmis ekki nýja stjórnarskrá til að friðmælast við rándýr.