Dýrir Geir og Davíð

Punktar

Hefðu pólitíkusar blöðruáranna ekki hagað sér sem fífl, værum við í skárri málum. Hefði Geir ekki tryggt innlendar innistæður í bönkum og sjóðum, væri ríkissjóður hundruðum milljarða ríkari. Hefði Davíð ekki ausið gjaldeyri villt og galið til bankanna í aðdraganda hrunsins, væri ríkið hundruðum milljarða ríkara. Samtals nam æði þeirra félaga mörgum sinnum Landsspítala og mörgum sinnum leiðréttingum á forsendubresti. Þjóðin áttaði sig ekki á þessu, kenndi ríkisstjórn Jóhönnu um hrunið. Heimska kjósenda náði hámarki, þegar þeir fólu fávísum arftökum Geirs og Davíðs að taka við stjórninni.