Egill bloggar bezt

Punktar

Daglega kíki ég á silfur Egils á visir.is. Þar birtir Egill Helgason skoðanir sínar, sumpart greinar úr DV og sumpart daglegar nótur. Egill er naskur á efni og hefur frumlegar skoðanir. Þær fara alls ekki saman við mínar, en samt finnst mér þær alltaf læsilegar. Egill kemst næst því að vera primus íslenzkra álitsgjafa, þótt mér finnist hann stundum vera upptekinn af sagnfræðiefnum á borð við illmennsku Stalíns og fleiri gaura fyrir áratugum. Bezt finnst mér tilvitnun hans í George Harrison bítil: “Ef allir sem eiga byssu skytu sjálfa sig, þá væri þetta ekki vandamál”.